......og ég nokkuð mörgum þúsund
köllum fátækari.
En það bara fylgir þessu og sé ég ekki eftir
einni einustu krónu. Það var algjörlega verslað þangað til við
gátum ekki staðið. Bókstaflega. Megnið af okkur eru bakveikar og
var bara lifað á verkjatöflum til að halda dagana út í búðunum.
Hehe svona á að gera þetta.
Við vorum komnar á fætur um hálf 8
alla morgnana og var þá sturtað sig, borðað og græjað sig fyrir
búðirnar. Planið var svo að hafa náttfatapartý þegar við værum
allar búnar að festa kaup á náttfötum í victoria´s secret en það
varð ekkert úr því. Því við vorum alltaf svo þreyttar þegar við
komum upp á hótel að það mátti þakka fyrir að við næðum að koma
okkur inná herbergin.
Hótelið sem við vorum á var æðislegt.
Við fengum 2 samliggjandi herbergi og gátum opnað á milli og
rölt um, svo var þar veitingastaður, sundlaug og líkamsrækt.
Fólkið var yndislegt og við vorum alltaf keyrðar og sóttar í
mollið þegar okkur hentaði. Og samt var þetta bara 3ja stjörnu
hótel. Hefði ekki boðið í að vera á 5 stjörnu
hóteli.
En það var semsagt misst sig
algjörlega í búðunum og sumir meira en aðrir....en ekki ég samt. Ég
kom bara heim með 2 troðfullar töskur á meðan aðrar voru með 5 stk
hahaha.
Fataði stelpuna gjörsamlega upp fyrir árið og rúmlega
það, keypti ekki eins mikið á mig og ég vildi því ég fann ekkert.
Nema í ræktina. En verslaði mér geðveikan galakjól, sem ég get
notað samt á jólunum og svona. Álíka kjóll hér heima kostar
30-40.000 en ég keypti hann á 5.500kr. Það var bara hlægilegt
verðið þarna á sumu.
Öll kvöldin skelltum við okkur svo út
að borða á hinum ýmsu stöðum og síðasta daginn fórum við í tívolíið
sem var by the way í miðju mollinu (þannig að þið getið rétt
ýmindað ykkur stærðina á mollinu) og svo í sædýrasafnið í
kjallaranum. Ég skellti mér í 2 rússíbana af 3 og þar af einn
vatnsrússíbana sem var geggjaður, þorði ekki í þann þriðja sökum
lofthræðslu hehehe.
Sædýrasafnið var geðveikt. Þar löbbuðum við í
gegnum rör og voru alls konar fiskar, skjaldbökur og hákarlar að
synda í kringum okkur. Þeim sem hafa kafararéttindi var svo boðið
að fara ofan í til þeirra og synda með þeim. Bara
kúl...
Kom svo heim á miðvikudaginn og fór
beint í vinnu, gjörsamlega búin á því....en þetta er allt að koma
sko. Planið um helgina er svo að vinna og taka því rólega yfir
einhverjum af þessum myndum sem ég keypti mér úti.
Jæja ætla að láta þetta duga í
bili......verið svo dugleg að kommenta folks